Tuesday, May 25, 2004

Helgin var fín, ég og Svenni fórum í bíó á föstudaginn að sjá Troy, mögnuð mynd alveg, en of mikil rómantík fannst mér auk þess sem það hefði sko alveg mátt sýna Brad Pitt allan!!! Svo á laugardaginn þá átti ég afmæli ;o) og varð tvítug. Ég fékk æðislegt armband frá honum svenna mínum og pening frá mömmu og pabba. Að vísu var engin veisla því að stelpurnar voru að útskrifast og soleis. Ég fór í veislur til Oddnýjar og Völu og þær voru báðar alveg frábærar... en svo um kvöldið fór ég svo aftur til oddnýjar og hellti í mig hvítvíni sem var bara svona helvíti gott!!!! ;o) hehehe
Eftir það fór ég í bæinn með Oddnýju og Bjartmari og það var ágætt, var reyndar ekkert svo mikið með þeim þar sem þau fóru á sólon þegar ég vildi fara á Mojito;o) það fannst mér ekki skemmtilegt!!! En svo fór ég að hitta Valla sæta og hann var bara með einhverju heavy sjúskuðu liði þannig að við fórum bara á opus þar sem ég hitti hana Þóreyju, en það kemur nú ekki á óvart ;) hehehe Svo fórum við valli á nonna og fengum okkur að éta og biðum svo eftir mána kjána og svenna og fórum svo með þeim heim.
Á sunnudaginn var ég frekar þunn, en það var alveg frekar mikið chill í vinnunni þannig að það hafði nú ekki mikið að segja. Gerði nú alveg soldið grín af henni Dýrleif minni af því að hún fór á selfoss um helgina, en henni fannst það nú bara dáldið fyndið!!! hehe
Svo fór ég að passa hann Gísla Björn í gær og hann er svo mikil rófa, sat bara og borðaði kex og var svo þvílíkt góður... Svo fór hann að sofa og Dýrleif kom í heimsókn til mín og við töluðum alveg heilmikið saman...
Kíktum svo til Valla og Gunna og chilluðum þar og spjölluðum við Gunna og horfðum á sjónvarpið;)
Í síðustu viku var einkunnaafhending og mér gekk svona líka vel í prófunum, náði öllu nema stærðfræði og er alveg heavy sátt með það, tók bara ákvörðun um að massa stærðfræðina á næstu önn;)
en alla vega segi þetta gott í bili... bæjó

your name scribbled at 3:20 PM


Sunday, April 04, 2004

Enn ein helgin liðin...
Á föstdaginn komst ég í svo innilega langþráð páskafrí og það er yndislegt, að vita ekki hvað maður á að gera, liggja bara einhvers staðar í leti! É föstudagskvöldið eftir vinnu fór ég út í MH þar sem var verið að halda kosningavöku, nennti þó ekki að vera þar allan tímann og fór bara í pool með Svenna og Valla. Veit þó að hún Lea sæta vann og verður hún ritari nfmh á næsta ári. Gott það og hún á eftir að standa sig, stelpan!!! ;o) Fór seint í vinnuna á laugardaginn og það var ekkert nema næs;o) gat nebbla sofið út;o) fór svo að passa hjá Rúnari og Selmu, því hún var að fara í eitthvað afmæli, en áður en hún fór þá sátum við bara og horfðum á söngvakeppni FF. MH átti ekki að vinna að mínu mati!!! Mér fannst MA eiga miklu meira skilið að vinna!!! Þeir voru flottir á sviðinu, gátu sungið og gátu dansað!!! enda fannst landsmönnum þeir bestir!!!! En svona er þetta, óska samt Sunnu og Sillu innilega til hamingju með sigurinn!!!
Vaknaði svo klukkan 9 í morgun til að fara að passa hann Gísla Björn aftur og shit hvað ég var þreytt í morgun!!! enda svaf ég líka yfir mig... en það jafnaði sig nú þegar drengurinn lagði sig, þá lagði ég mig bara líka og það var alveg heví næs :o) var líka alveg sona frekar mygluð á því í morgun!!!
Læt þetta duga í bili... er að bíða eftir honum Svenna mínum til að við getum farið eitthvað og fengið okkur að éta!!!
Até outro dia ;o)
Beijos da Bergný

your name scribbled at 7:52 PM


Wednesday, March 31, 2004

Ákvað að reyna að vera soldið aktív hérna og setja eitthvað inn. Stelpurnar eru komnar heim frá Spáni og gott ef að þær sem að ég er búin að hitta eru bara ekki eins og einhverjir helv**** negrar!!! En þetta er allt í lagi ég verð líka negri í sumar ;o)
Ég fékk líka að heyra svona smá slúður í gær... Jóhanna lærði líka að segja hola á spænsku;o) Það er stórsigur!!!! hahaha ;o)

Svo vorum við Svenni líka svo fræg að kíkja í heimsókn til hennar Svövu minnar og hún býr líka í þessari svakalegu fínu íbúð í Hraunbæ, þar sem helmingur íbúa Reykjavíkur býr. Og hún er líka svona svaklega fín húsmóðir.

Það er ágætis stress í gangi, á að skila íslenskuritgerð á föstudaginn og það er sona nett stress í gangi og soleis... en svo er bara páskafríið framundan... Það verður svo yndislegur tími!!!!

Svo eru foreldrarnir að fara út á land um helgina og það verður alveg frekar fínt. Bara rólegheit og afsöppun...

Læt þetta duga í bili, kannski meira seinna eftir mánuð eða eitthvað!!! hahaha ;o)
Góða nótt;o)

your name scribbled at 11:53 PM


Wednesday, February 25, 2004

Jæja þá veður það bara tekið rólega í kvöld, Árný farin til ömmu, mamma og pabbi skruppu út og ég er bara heima með hann Hallmann minn sæta;o) Jóhanna er líka hérna í smá heimsókn hjá okkur núna áður en hún skellir sér í Hreyfingu!
Gott ef hún Dýrleif mín benti mér ekki á þessa mynd sem tekin var á gauknum um helgina




já þau eru alveg ágæt...;o)

En allavega hékk í Kringlunni í soldinn tíma í dag og það var nú bara alveg ágætt... Spjallaði við stelpurnar og soleis... Fékk líka nammi án þess að þurfa að syngja fyrir því...
það var mjög hentugt!!!!!!,o)

Svo eru líka lagningadagar í skólanum sem er alveg nett sko... Maður þarf bara að mæta í í nokkra tíma og svo er bara frí!! Mjög hentugt fyrir svefnpurkur!!!!! ;o) Fór í dag á fyrirlestur um kvennaathvarfið, sem mér fannst alveg frekar fræðandi, þó svo að sumir aðrir hafi ekki haft mikla einbeitingu...;o)
Svo kemur bara í ljós hvað maður gerir á morgun....

xau queridas, beijos para voces ;o)

your name scribbled at 8:11 PM


Tuesday, February 24, 2004

Þá er loksins kominn sprengidagur með öllu tilheyrandi ;o) tveggja ára bið loksins á enda. Svo var auðvitað bolludagurinn í gær en ég fékk engar bollur... buhuhu...

En allavega þá er ég búin að vera að gera dáldið mikið... Þann 14. febrúar var tvítugsafmæli hjá Völu, Röggu og henni Oddnýju minni og óska ég þeim innilega til hamingju með það ;o) Það var alveg massastuð þar og gott ef ég og Jóhanna vorum bara ekki aðeins komnar í stuð þegar við mættum á svæðið, misstum okkur svo í þessari líka massagóðu bollu sem var í boði....heheheh. Gott ef að hann Svenni minn kom ekki líka á svæðið og hann þekkti nánast fleiri en ég þarna.... Gott ef hann er ekki líka bara aktívastur af öllum sem ég þekki þegar kemur að einhverjum sona social uppákomum...
Svo núna á laugardaginn þá átti hún Svava beib ammæli og það var líka svona massastuð... Það var haldið á Gauknum og það var alveg hreint svakalegt, ball með í svörtum fötum og soleis... Hitti þar sona nokkra sem ég kannaðist við m.a. Kristínu Ingibjörgu vinkonu hennar Svövu og Erlu sem reyndist góður bjargvættur á Bylgjulestarballinu í sumar.... Svo sá ég líka þarna Gumma rauða og auðvitað Sylvíurnar tvær og Önnu Margréti sem var alveg í hreint rosalegu stuði.

Svo mætti sjálfur Sauðkræklingurinn hann Elli á Gaukinn og gott ef henni vinkonu minni fannst hann ekki bara geðveikt sætur og þau voru eitthvað að hözzlast þarna á dansgófinu... og svona til að hafa það með þá er hún sú fimmta af mínum vinkonum( svona um það bil) sem hann er búinn að vera með!!! En samt þetta er bara fyndið !!! ;o) hehehe... Svona er bara Ísland í dag!!!! hehehehe ;o)

En svo eru að koma lagningardagar í skólanum og svo er árshátíðin á föstudaginn, en það er nú bara spurning um að beila og gera eitthvað annað í staðinn sem krefst minni kostnaðar...

En allavega læt þetta duga í bili...
Muitos beijos para voces todos....;o)

your name scribbled at 6:33 PM


Friday, February 06, 2004

Jæja þá er nú best að fara að gera eitthvað hér... búin að fá skot úr öllum áttum...
En allavega þessi vika er búin að líða nokkuð hratt, búin að vera á fullu í skólanum og svo að vinna þar sem mikið er búið að vera um veikindi þar... Ekki búin að hafa neinn tíma til að læra... en ég meina það skiptir engu máli þar sem ég hefði hvort eða er ekkert gert það...;o) Fór með Svenna og Valla vini hans í Pool í gær og shit hvað það var gaman, nema í endann þá var ég nebbla orðin svo gegt þreytt... En allavega ég vann Valla á meðan Svenni fór að pikka upp stelpurnar, þær voru nú víst að fara á ball þessar elskur, vonandi gerði engin þeirra neina stórtæka skandala, en við nefnum engin nöfn!!!!;o) Þú veist hver þú ert sæta...;o)

en læt þetta duga í bili tíminn að verða búinn og soleis...;o)

your name scribbled at 12:03 PM


Wednesday, January 28, 2004

Gleymdi víst líka að segja að á föstudaginn var saumó hjá Kristrúnu sem var alveg massafínt. En ég held að það hafi verið Elín sem sló öllum við í stuðinu það kvöld vegna þess að hún var nú orðin alveg frekar drukkin þegar hún mætti heim til Kristrúnar, en það var nú bara út af því að hún Dísa Skvísa var að halda upp á 20 ára afmælið sitt það kvöld. Kíkti svo aðeins heim til skvísunnar þar sem var massapartý, en mér fannst bara ekkert spes, svo að ég fór bara eiginlega strax... En Elín mín, no hard feelings, þó að ég sé að deila þessu með fólki... hehehe ;o)

your name scribbled at 8:12 PM


Það er nú orðið soldið langt síðan maður bloggaði síðast svo að maður er kominn inn á sérstakan lista hjá sumum, sem felur í sér að vera algjör tossi í þessu bloggveseni!!!

En allavega er ekkert merkilegt búið að vera að gerast undanfarið, bara skólinn og vinirnir og vinnan. En á föstudaginn fór ég út að keyra með Jóhönnu, Signýju og Einari Gunn og svo líka Fannari. Við tókum þennan svakalega spúkí rúnt upp í Lækjarbotna, þar sem ég vissi um eitt alveg frekar ógeðslegt hús sem ég sá þar þegar ég var eitthvað 12 ára eða eitthvað og viti menn það var þarna ennþá og bara orðið viðbjóðslegra heldur en mig minnti, enda líka snjór og myrkur í þokkabót... Gott ef Jóhanna vildi bara ekki láta læsa öllum hurðum þar sem hún var svo hrædd um að það myndi einhver koma og kannski líka bara reyna að opna hurðina á ferð! Laglegt Jóhanna, en það var samt bara fínt af því að ég var líka soldið hrædd að vera að keyra þarna... ;o)

Svo hitti ég Svenna á laugardaginn og við tókum okkur spólu sem var bara mjög fínt, mikið tjill það kvöld og bara nokkuð kósý ;o)

Í gær fór ég bara í skólann og það var bara nokkuð nett, gerði ekki neitt þar frekar en fyrri daginn, reyndar fór ég í world class í gær og tók alveg nett á þar og það var alveg ágætt... Fékk meir að segja engar harðsperrur... ;o) HEPPIN!!! ;o)
Fór svo líka að vinna í gær kl. 7 og það var bara nokkuð fínt, var að taka smá aukavinnu fyrir Vífil og Guðna... Dró hana Rannveigu með mér í það, en hún er alveg massapæja og algjört krútt. Það voru einmitt massívar umræður um stráka og mál sem viðkoma þeim... ;o) ég er nú bara hálffegin að það var enginn þarna sem gat heyrt neitt... En ég er viss um að nokkrir aðilar hefðu ekki haft neitt á móti því að hafa heyrt þessar innihaldsríku samræður okkar!!!!! hehehe ;o) ;o)

En allavega læt þetta duga í bili...

E para os portugueses tenho muitas saudedes vossas e eu tenho quase a certeza que vou para Portugal en junho... ;o) beijos para voces todos ;o)

your name scribbled at 8:02 PM

about me

Nafn: Bergný Ösp
Skóli: MH